
Purifying sjampóið frá Davines er í miklu uppáhaldi hér á landi, en það er róandi og sótthreinsandi sjampó fyrir hársvörð sem þjáist af þurri eða feitri flösu - tilvalið í íslenska veðráttu og endalausar veðursveiflur!
Án parabena og súlfata.
Vörurnar í Purifying línunni meðhöndla og fyrirbyggja feitan eða þurran hársvörð sem veldur flösu. Þær innihalda phytoceuticals úr túnfíflum sem hafa andoxandi og bólgueyðandi virkni. Spoex, samtök psoriasis- og exemsjúklinga, mæla með Purifying línunni fyrir þá sem kljást við psoriasis eða exem í hársverði.
Notkun
Berið í rakt hárið og nuddið í hársvörðinn. Látið liggja í nokkrar mínútur og skolið úr.
Gott er að nota Purifying sjampóið 2-3x í viku í nokkrar vikur og fækka svo skiptunum rólega. Eftir ca 6 vikur er fínt að taka pásu þar til fer að bera aftur á flösu.